Innlent

Möguleikar á hóteli í miðbæ Hafnarfjarðar kannaðir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á fundi bæjarráðs var lagt fram minnisblað þar sem fram kemur að samkvæmt Hagstofu Íslands fjölgaði gistinóttum á heilsárshótelum á Íslandi úr 1.035 þúsund árið 2005 í 2.320 þúsund árið 2014.
Á fundi bæjarráðs var lagt fram minnisblað þar sem fram kemur að samkvæmt Hagstofu Íslands fjölgaði gistinóttum á heilsárshótelum á Íslandi úr 1.035 þúsund árið 2005 í 2.320 þúsund árið 2014. vísir/Pjetur
Á fundi bæjarráðs í morgun var rætt um hóteluppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri  segir grundvöll fyrir nýju hóteli í Hafnarfirði en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðabæ.

„Í Hafnarfirði eru nú tvö þriggja stjörnu hótel, Hótel Víking og Hótel Hafnarfjörður með um 350 gistipláss og samkvæmt upplýsingum frá eigendum þeirra var nýting hótelanna mjög góð á síðasta ári. Samkvæmt þessu og öflugum vexti í ferðaþjónustu á Íslandi, einkum utan sumartíma, virðist augljóslega grundvöllur fyrir þriðja hótelinu í Hafnarfirði. Kannanir sýna að 15% erlendra ferðamanna sem komu til Íslands sumarið 2014 höfðu einhverja viðdvöl í Hafnarfirði. Þar af gistu rúmlega 3%, í að jafnaði 3,1 nótt, en um 12% komu í dagsferð. Það þýðir að aðeins 20% þeirra sem áttu viðdvöl í bænum gistu þar og þarna er klárlega sóknarfæri“ segir Haraldur.

Á fundi bæjarráðs var lagt fram minnisblað þar sem fram kemur að samkvæmt Hagstofu Íslands fjölgaði gistinóttum á heilsárshótelum á Íslandi úr 1.035 þúsund árið 2005 í 2.320 þúsund árið 2014, eða um 124%. Þar af var hlutdeild heilsárshótela á höfuðborgarsvæðinu 67-70%.  Árið 2014 stefnir í að gistinætur þeirra verði alls um 1.560 þúsund eða 67% af heildinni.  Af gistinóttum á heilsárshótelum á höfuðborgarsvæðinu árið 2014 má áætla að hlutur hótelanna tveggja í Hafnarfirði hafi verið nálægt 4%.

Í tilkynningunni segir að með ákveðnum forsendum í huga má gera ráð fyrir að gistinætur á nýju hóteli verði 65 þúsund á ári og útgjöld viðskiptavinanna nálægt 2 milljörðum á ári. Þar af fari um 1,2 milljarðar í gegnum gististaðinn en um 300 milljónir í útgjöld annars staðar í Hafnarfirði og 500 milljónir víðar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, s.s. í skipulagðar ferðir, veitingahús, eldsneyti, verslun, söfn/sýningar og aðra afþreyingu.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×