Sport

Mjölnismenn með fjóra sigra á fyrsta degi Evrópumótsins

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Bjarki Ómarsson fagnar sigri.
Bjarki Ómarsson fagnar sigri. Kjartan Páll Sæmundsson.
Evrópumeistaramót áhugamanna í MMA fer fram þessa dagana í Birmingham. Átta Íslendingar eru skráðir til leiks og fór fyrsti keppnisdagurinn fram í dag.

Íslendingarnir koma öll úr röðum Mjölnis en fimm þeirra kepptu í dag. Mótið er með útsláttarfyrirkomulagi og fór fyrsta umferð fram í dag.

Óhætt er að segja að uppskera dagsins hafi verið afar góð en fjórir Íslendingar eru komnir áfram. Nafnarnir Bjarki Ómarsson og Bjarki Þór Pálsson sigruðu báðir sína bardaga með „rear naked choke“ hengingu í 2. lotu.

Egill Øydvin Hjördísarson var aðeins 49 sekúndur að sigra andstæðinginn sinn með „D’arce“ hengingu. Hann sigraði sinn síðasta bardaga á aðeins sjö sekúndum og því hafa síðustu tveir bardagar hans verið samanlagt undir einni mínútu.

Bjartur Guðlaugsson var að keppa sinn fyrsta bardaga í MMA og sigraði eftir klofna dómaraákvörðun.

Síðastur af Íslendingunum var Hrólfur Ólafsson en hann tapaði eftir klofna dómarákvörðun og er því dottinn úr leik. Bardaginn var gríðarlega jafn og töldu margir að Hrólfur hefði átt að fá sigurinn dæmdan sér í vil.

Þeir Bjarki, Bjarki Þór, Egill og Bjartur keppa því aftur á morgun. Þau Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Pétur Jóhannes Óskarsson og Inga Birna Ársælsdóttir sátu hjá í dag en munu keppa á morgun. Það verða því sjö Íslendingar í eldlínunni á morgun.

Nánari lýsingu á bardögunum má finna á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×