Innlent

Mistök að innleiða ESB-tilskipun um orkumál

Heimir Már Pétursson skrifar

Fjármálaráðherra segir að það hafi verið mistök að skipta upp orkuvinnslu og dreifingu á sínum tíma, sem varð til þess að HS-Orka komst í eigu einkaaðila. Hann segir stjórnvöld vilja ganga til samninga við Magma Energy um eignarhaldið á HS-Orku.

Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður og fleiri afhentu forystumönnum ríkisstjórnarinnar um 50 þúsund undirskriftir í gær, þar sem þess er krafist að HS-Orka verði færð í almannaeigu og að orkuauðlindir landsins verði almennt í eigu hins opinbera.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að verið sé að fara yfir allt lagaumhverfið í orku- og auðlindamálunum. En árið 2007 voru samþykkt lög sem gerðu orkufyrirtækjum skipta að skipta upp starfsemi sinni í framleiðslu og dreifingu. Stjórnvöld vilji endurheimta forræðið í HS Orku.

„Og vinna það til baka. Það eru ýmsar leiðir færar í þeim efnum. Samkomulag við fyrirtækið, að gera það að einhverju leyti í gegnum almenn lög sem menn verða síðan að aðlaga sig að, kaup á fyrirtækinu og eignarnám - það eru ýmsar leiðir sem koma til greina að sjálfsögðu," sagði fjármálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Ráðherrann segir að eðlilegt sé að ræða þessi mál við núverandi eigendur fyrirtækisins. Ríkið eigi nú meirihluta allra orkufyrirtækja í landinu og því verði ekki breytt.

„Frekar hitt að við munum setja í lög enn sterkari varnir fyrir sameigninni á auðlindinni og við höfum horft dálítið til Noregs í þeim efnum og þeirra lagaákvæða sem þar gilda," sagði Steingrímur.

Það hafi verið mistök að fara í uppskiptingu orkufyrirtækjanna árið 2007. Já ég tel það. Ég tel að við hefðum átt að sækja um undanþágu frá raforkutilskipun ESB og fá að hafa okkar orkumarkað sem er algerlega einangraður hér á eyju út í Atlantshafinu þannig uppbyggðan sem okkur hentaði best," sagði Steingrímur.

Íslendingar hafi gengið lengra en þurfti við innleiðinguna sem leitt hafi til hækkun orkuverðs. Hann vildi hins vegar ekki fullyrða hvort mögulegt væri að láta málið ganga til baka. Ekki sé víst að það sé eins auðvelt og ef stjórnvöld hefðu strax í byrjun óskað eftir því að vera undanskildir ákvæðinu um uppskiptingu raforkufyrirtækjanna.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×