Innlent

Minna í lögreglu þótt fólki fjölgi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ferðamönnum fjölgar hratt á Suðurlandi.
Ferðamönnum fjölgar hratt á Suðurlandi. vísir/gva
Ferðamönnum á Suðurlandi fjölgaði um hálfa milljón á síðustu tveimur árum. Bæjarstjórn Hornafjarðar segir ótækt að samt eigi að draga úr fjárframlögum ríkisins til embættis lögreglustjóra á Suðurlandi á næsta ári.

„Fjöldi íbúa á bak við hvern lögreglumann á Suðurlandi er 601. Til samanburðar er hann á landinu öllu 500 íbúar. Þar fyrir utan er ferðamannafjöldinn langmestur um Suðurland,“ segir bæjarstjórn Hornafjarðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×