Innlent

Minkur á vappi við Hörpu

Gissur Sigurðsson skrifar
Minkurinn sást við Hörpu.
Minkurinn sást við Hörpu. mynd/Jóhann Gunnar Helgason
Minkur var á ferð um Ingólfsgarð við Hörpu um níu leitið í gærkvöldi. Hann var ekki styggari en svo að mynd náðist af honum, sem bendir til þess að hann hafi fasta viðveru í borginni og þekki hvað ber að varast.

Það er ekki einsdæmi að minkur sjáist á höfuðborgarsvæðinu allt vestur á Seltjarnarnes enda eru kjöraðstæður fyrir hann í grjóthleðslum með ströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×