Innlent

Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu við Engihjalla

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu var við Engihjalla í Kópavogi í kvöld.
Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu var við Engihjalla í Kópavogi í kvöld. Vísir/SS
Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu var við Engihjalla í Kópavogi á níunda og tíunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fólst lögregluaðgerðin í því að afvopna mann sem hélt á eggvopni.

Sjónarvottur sagði í samtali við fréttastofu að sérsveitarmenn hefðu látið sig síga niður á svalir íbúðarinnar þar sem maðurinn var staddur og brotið sér þannig leið inn.

Þrír lögreglubílar, tveir sérsveitarbílar auk sjúkrabíls voru á vettvangi. Ætla má að lögregluaðgerðinni sé lokið því allir bílar, að tveimur lögreglubílum undanskildum, eru farnir af vettvangi.

Þrír lögreglubílar, tveir sérsveitarbílar og sjúkrabíll voru á vettvangi í kvöld.Vísir/Friðrik



Fleiri fréttir

Sjá meira


×