Fótbolti

Miðasala á leikinn gegn Hollandi hefst í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Anton
Miðasala fyrir leik Íslands og Hollands í undankeppni EM 2016 hefst klukkan 12.00 í dag. Hún fer fram á midi.is.

Fastlega má reikna með því að uppselt verði á leikinn en Ísland fékk draumabyrjun í riðlinum þegar strákarnir unnu 3-0 sigur á Tyrkjum fyrr í mánuðinum.

Holland endaði í þriðja sæti á HM í Brasilíu í sumar en margar af stærstu stjörnum knattspyrnuheimsins eru í hollenska liðinu. Hollendingar töpuðu þó heldur óvænt fyrir Tékklandi, 2-1, í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Ísland mætir fyrst Lettlandi ytra föstudaginn 10. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×