Innlent

Miðaldra og skulda umtalsverð námslán

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
Málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna voru til umræðu á Alþingi.
Málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna voru til umræðu á Alþingi. Vísir/Daniel
Nú eru 67 námsmenn 50 ára og eldri í námi og fá námslán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Heildarnámslánaskuldir þessa hóps nema 729 milljónum króna.

Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Illuga Gunnarssonar, menntamálaráðherra í sérstökum umræðum á Alþingi í gær um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Illugi sagði að þessu fólki, sem væri komið yfir miðjan aldur og væri enn í námi, myndi ekki auðnast að greiða námslán sín tilbaka.

Hann sagði jafnframt að meðalaldur lánþega LÍN væri að hækka og sömuleiðis lánin. Það tæki fólk að meðaltali 20 ár að endurgreiða lánin nú en árið 2009 hefði sá tími verið 14 ár.

Illugi Gunnarsson
Það var Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hóf umræðuna um LÍN. Hún spurði ráðherra hvort í bígerð væri frumvarp um lækkun á höfuðstól verðtryggðara námslána og vísaði þingmaðurinn til höfuðstólslækkunar á húsnæðislánum. 

Ráðherra sagði að slíkt frumvarp væri ekki í farvatninu, lækkun á höfuðstól verðtryggðra lána hefði verið bundin við íbúðalán eingöngu. Ef til þess kæmi að slíkt frumvarp yrði lagt fram yrði það fjármálaráðherra en ekki menntmálaráðherra sem hefði forgöngu um það. 

Sigríður Ingibjörg spurði ráðherrann einnig um það hvort það væri eðlilegt að fólk væri enn að greiða af námslánum eftir að það hefði náð 67 ára aldri og væri komið á eftirlaun. 

Ráðherrann sagði að námslán eins og önnur lán, svo sem húsnæðislán, ættu sér framhaldslíf þó að lánþeginn færi á eftirlaun. Illugi sagði að það mætti gera ráð fyrir því að námið sem hefði verið fjármagnað með lánum hefði leitt til þess að tekjur hefðu aukist á starfsævinni sem lánþeginn myndi njóta þegar kæmi að eftirlaunaaldri. 

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Þá kom fram að það myndi kosta 700 til 800 milljónir á ári að fella lánin niður við 67 ára aldur. Á 17 árum myndi sá kostnaður nema 22 milljörðum króna.

Nokkrir þingmenn spurðu Illuga út í ábyrgðarmannakerfið og hvort ekki væri rétt að breyta því svo erfingjar ábyrgðarmanna sætu ekki uppi með ábyrgðir á lánum sem þeir hefðu oft á tíðum ekki vitað af. Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að hann treysti því að menntamálaráðherra breytti ábyrgðarreglum á eldri námslánum.

Illugi Gunnarsson svaraði því ekki hvort einhverjar breytingar stæðu til á ábyrgðarmannakerfi eldri lána.


Tengdar fréttir

Ábyrgðarmenn rukkaðir fram yfir gröf og dauða

Hætt var að krefjast ábyrgðarmanna á námslán árið 2009 en ábyrgðarmenn eldri lána geta verið eltir til greiðslu allt að dánarbúum þeirra. Frumvarp fyrrverandi menntamálaráðherra til breytinga féll á tíma.

LÍN fylgir ekki almennum reglum í samfélaginu

Hæstiréttur mun dæma í máli ábyrgðarmanns námsláns í vetur sem getur orðið til þess að ábyrgðir námslána verði ógiltar, vinni ábyrgðarmaðurinn málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×