Sport

Michael Bisping varði titilinn á heimavelli

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Bisping fagnar sigri.
Bisping fagnar sigri. Vísir/Getty
Michael Bisping er enn millivigtarmeistari UFC eftir frábæran bardaga gegn Dan Henderson. Bisping bar sigur úr býtum gegn Dan Henderson í aðalbardaga UFC 204 í nótt.

UFC 204 fór fram í Manchester í nótt en bardagi Bisping og Dan Henderson hófst kl. 5 á staðartíma í Manchester. Henderson var tvívegis nálægt því að endurtaka leikinn frá 2009 og rota Bisping en tókst ekki.

Henderson kýldi Bisping niður í 1. og 2. lotu og var ansi nálægt því að klára bardagann. Bretinn Michael Bisping sýndi þó mikla seiglu og hélt sér inn í bardaganum þrátt fyrir að vera vel vankaður. Bisping naut stuðnings áhorfenda og lenti fleiri höggum en Henderson yfir loturnar fimm. Bisping stóð því uppi sem sigurvegari eftir dómaraákvörðun í frábærum bardaga.

Þetta var síðasti bardagi hins 46 ára Dan Henderson eftir langan og glæsilegan feril. Henderson ávarpaði áhorfendur í lokin og þakkaði fyrir stuðninginn í gegnum árin.

Gegard Mousasi átti frábæra frammistöðu er hann sigraði Vitor Belfort með tæknilegu rothöggi í 2. lotu. Mousasi vankaði Belfort standandi og kláraði hann svo með höggum í gólfinu.

Jimi Manuwa átti svo sína bestu frammistöðu á ferlinum er hann kláraði Ovince St. Preux með rothöggi í 2. lotu.

Bardagakvöldið var frábær skemmtun frá upphafi til enda en aðeins tveir af 11 bardögum kvöldsins fóru allar þrjár loturnar. Öll önnur úrslit kvöldsins má sjá á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir

Fáum við sögulegan sigur eða hefnd í kvöld?

Michael Bisping mætir Dan Henderson um millivigtartitilinn í nótt á UFC 204. Þessi titilbardagi er með þeim furðulegri í UFC en gæti orðið sögulegur fyrir margar sakir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×