Enski boltinn

Messan: Rikki Daða teiknar sóknarleik Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ríkharður Daðason var einn af gestum Guðmundar Benediktssonar í Messunni á Stöð 2 Sport í gær og hann tók meðal annars fyrir sóknarleik Liverpool.

Ríkharður nýtti tækifærið og var kominn fyrir framan teiknitölvuna til að sýna betur sóknarleik Liverpool.

Liverpool vann sannfærandi 3-0 sigur á Southampton og tók Ríkharður sérstaklega fyrir þriðja mark Liverpool-liðsins.

„Þetta er aðdragandinn að 3-0 markinu. Þeir eru 2-0 yfir og það eru 66 mínútur búnar. Southampton er í sjálfu sér að verjast vel og leikmenn Liverpool eru rosalega þolinmóðir. Svo þegar þeir ákveða að gera árás þá leysa þeir þetta vel,“ sagði Ríkharður en það má sjá myndband með greiningu hans hér í spilaranum fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×