Enski boltinn

Messan: De Gea verið frábær síðan í október | Myndband

David de Gea.
David de Gea. vísir/getty
Spánverjinn David de Gea átti ótrúlegan leik í marki Man. Utd gegn Liverpool og var eðlilega rætt um hann í Messunni.

„Hann er búinn að vera frábær síðan hann vann leikinn gegn Everton 5. október. Hann varði mjög vel gegn Liverpool en auðvitað eru þetta slakir „slúttarar" hjá Liverpool. Menn með tvö til þrjú mörk á tímabilinu. Flestar af þessum vörslum eru skyldumarkvörslur," sagði Hjörvar Hafliðason.

„Hann gerir samt sérstaklega vel í tvígang. Ég skil samt ekki af hverju hann stendur eiginlega alltaf inn í markinu. Hann bjargar sér síðan með frábærri fótavinnu."

Arnar Gunnlaugsson greinir svo frá því að hann viti að David Moyes hafi haft miklar efasemdir um geta De Gea í fyrra.

Umræðuna um De Gea má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×