Innlent

Með hjarta úr gulli:15 ára stelpa á Selfossi gaf 100 jólagjafir

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Rósa Signý Ólafsdóttir, fimmtán ára grunnskólanemandi á Selfossi, kom hundrað eldri borgurum heldur betur á óvart þegar hún færði þeim öllum jólagjöf eða jólapoka, sem innihéldu meðal annars kerti og spil.

Rósa Signý naut aðstoðar fjölskyldu sinnar þegar jólapokarnir voru bornir inn á sjúkrahúsið á Selfossi en allir heimilismenn á öldrunardeildunum Ljósheimum og Fossheimum fengu jólagjöf, auk eldri borgara í heimaþjónustu. Sverrir Stormsker, sem er fjölskylduvinur á heimili Rósu, byrjaði á því að spila á píanóið og svo ávarpaði Rósa viðstadda.

„Ég ætla bara að segja við ykkur, gleðileg jól, ég vona að þið hafið það sem best um jólin og verðið í rosalega góðu jólaskapi. Ég ætla að gefa ykkur smá þakklætisvott fyrir það sem þið hafið gert og gefa ykkur jólagjafir“, sagði Rósa Signý.

Því næst gekk hún, sem var með þrjá litla aðstoðarmenn með sér á milli fólksins og afhendi gjafirnar. Í hverju poka var kerti og spil, malt og appelsín, mandarína og sælgæti. Heimilisfólkið átti ekki til orð yfir þessari ungu stelpu, sem virðist vera með hjarta úr gulli eins og fólkið sagði sjálft.

En hvernig datt Rósu  í hug að gefa allar þessar jólagjafir ?

„Þetta var sameiginleg hugmynd hjá mér og mömmu minni, hún sagði þetta mjög góða hugmynd og við ákváðum að láta hana verða að veruleika“, segir Rósa Signý.  En er hún svona hjartahlý ? „Já, ég myndi segja það“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×