Fótbolti

Með 80 prósent nýtingu í aukaspyrnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brasilíumaðurinn Willian.
Brasilíumaðurinn Willian. Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Willian skoraði eitt marka Chelsea í 4-0 sigri á ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Willian kom Chelsea-liðinu í 2-0 í leiknum þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu á 73. mínútu.

Þetta var fjórða aukaspyrnumark Willian í Meistaradeildinni á þessu tímabili og hann jafnaði þar með met landa síns Juninho Pernambucano samkvæmt upplýsingum frá spænska tölfræðingnum Alexis Martín-Tamayo.

Juninho skoraði einnig fjögur mörk beint úr aukaspyrnum með franska liðinu Lyon í Meistaradeildinni 2005-2006.

Það er ekki síður athyglisvert að Willian hefur ekki þurft margar aukaspyrnur til að skora þessi aukaspyrnumörk.

Hann hefur þannig skorað úr 4 af 5 aukaspyrnum sínum í Meistaradeildinni og úr 6 af 12 aukaspyrnum sínum í öllum keppnum.  OptaJoe sagði frá þessu.

Það að Willian skuli vera með 80 prósent nýtingu úr aukaspyrnum í Meistaradeildinni er mögnuð staðreynd. Það er nánast orðið eins og að fá á sig vítaspyrnu að fá á sig aukaspyrnu rétt fyrir utan teig á móti Chelsea.

Willian hefur skoraði öll sex mörkin sín á tímabilinu beint úr aukaspyrnu en þetta er þegar orðið það mesta sem hann hefur skorað á einu tímabili með Chelsea. Willian skoraði 4 mörk á fyrstu tveimur tímabilum sínum á Stamford Bridge.

Enginn annar leikmaður hefur heldur náð að skora svona mörk aukaspyrnumörk í toppdeildum Evrópu en í öðru sæti er Roma-maðurinn Miralem Pjanic með fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×