Sport

Mayweather býður Conor 6,2 milljarða fyrir Nýársbardaga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Conor McGregor.
Conor McGregor. Vísir/Getty
Bandarískir fjölmiðar halda áfram að skrifa um mögulegan tröllabardaga á milli boxarans Floyd Mayweather og bardagamannsins  Conor McGregor en það er ljóst að margir gætu grætt mikla pening  fari slíkur bardagi einhvern tímann fram.

TMZ Sports hefur nú heimildir fyrir því að Floyd Mayweather ætli að bjóða Íslandsvininum Conor McGregor 50 milljónir dollara fyrir að berjast við sig á Nýárskvöld í Las Vegas. Það eru 6,2 milljarðar í íslenskum krónum og því engin smáupphæð. Bleacherreport segir frá.

Dana White, forseti UFC, gæti verið sá sem kemur í veg fyrir bardagann en Floyd Mayweather þarf örugglega að fá hans leyfi til að berjast við samningsbundinn UFC-bardagamann eins og Conor McGregor.

Það má fastlega búast við því að svona bardagi þurfi að vera skipulagður af Dana White og félögum og um leið ætti UFC þá að fá stærsta bitann af kökunni.

Floyd Mayweather ætlar sér líka örugglega að bæta mörgum milljörðum við þær gríðarlegu upphæðir sem hann vann sér inn á boxaraferlinum þar sem hann tapaði aldrei í hringnum.

Báðir kapparnir hafa samt tekið vel í þessa hugmynd en allt skipulag er eftir eins og eftir hvaða reglum verið barist, box eða UFC-reglum og hvernig peningurinn skiptist á milli þeirra sem koma að þessu tímamótaborði.

Floyd Mayweather þykir ekki gefa mikið eftir við samningaborðið eins og hann hefur sannað áður í aðdraganda sinna bardaga og ekki þykir Dana White vera maður sem lætur plata sig í að gera lélega samninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×