Fótbolti

Markalaust hjá Udinese | Juventus með níu stiga forskot

Anton Ingi Leifsson skrifar
Juventus er með níu stiga forskot.
Juventus er með níu stiga forskot. vísir/getty
Emil Hallfreðsson kom inná sem varamaður þegar Udinese gerði markalaust jafntefli við Chievo Verona í dag.

Udinese er í sextánda sætinu með 35 stig, en Emil kom inná sem varamaður á 51. mínútu. Tvö rauð spjöld fóru á loft í leiknum.

Juventus unnu öruggan 4-0 sigur á Palermo þar sem Sami Khedira, Paul Pogba, Juan Cuadrado og Simone Padoin skoruðu hver eitt mark og lokatölur 4-0.

Meistararnir eru á toppnum með níu stiga forskot eftir að Napoli tapaði fyrir Inter í gærkvöldi.

Fiorentina er í fimmta sætinu eftir 3-1 sigur á Sassuolo og Roma er í þriðja sætinu, en þeir gerðu 3-3 jafntefli gegn Atlanta.

Hellas Verona er nánast fallið eftir 2-1 tap gegn Frosinone.

Öll úrslit dagsins:

Atlanta - Roma 3-3

Fiorentina - Sassuola 3-1

Hellas Verona - Frosinone 1-2

Juventus - Palermo 4-0

Udinese - Chievo Verona 0-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×