Glamour

Mariah Carey gerir sitt öfundsverða líf að opinni bók

Ritstjórn skrifar
Mariah er ein frægasta söngkona heims en hún lifir afar skrautlegu lífi ef eitthvað er að marka stiklurnar úr nýja þættinum hennar.
Mariah er ein frægasta söngkona heims en hún lifir afar skrautlegu lífi ef eitthvað er að marka stiklurnar úr nýja þættinum hennar.
Söng-dívan Mariah Carey mun brátt frumsýna nýja raunveruleikaþætti á sjónvarpsstöðinni E! sem koma til með að heita Mariah's World. Þættirnir elta söngkonuna á tónleikaferðalagi um heiminn ásamt því að fylgjast með henni skipuleggja brúðkaupið sitt við James Packer. 

Aðdáendum hennar til mikillar ánægju verður nóg um að vera í þáttunum og hægt verður að kynnast Mariuh töluvert betur en hún hefur aldrei hleypt myndavélunum inn í líf sitt á þennan hátt. 

Í þáttunum má búast við því að Mariah sýni sína innri dívu-takta en í klippunni hér fyrir neðan má meðal annars sjá hana slökkva á kertum á afmælisköku með kampavíni. Hún útskýrir einnig afhverju hún er alltaf með sólgleraugu inni en það ku vera vegna þess að hún lætur aldrei neinn sjá sig í flúor ljósi. 



Meira um þessa spennandi þætti hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Carey skýtur á eiginmanninn

Mariah Carey lét nýtt lag, Infinity, í sölu á iTunes í gær. Lagið verður eina nýja lagið á komandi plötu hennar, Mariah Carey #1 to Infinity.






×