Tíska og hönnun

Margverðlaunuð fyrir listsköpun í London

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Síðustu ár hafa verið ævintýraleg hjá Kristjönu S. Williams.
Síðustu ár hafa verið ævintýraleg hjá Kristjönu S. Williams.
„Þetta er búið að vera dálítið brjálað ár en mjög skemmtilegt,“ segir Kristjana Williams, listamaður og hönnuður, sem á dögunum fékk H Club 100 verðlaunin.

Þar var hún meðal þeirra tíu efstu sem verðlaunaðir voru en árlega eru valdir þeir sem eru taldir skara fram úr í hinum skapandi iðnaði í Bretlandi.

Rak verslun í átta ár

Kristjana útskrifaðist úr grafískri hönnun frá Central St Martin's fyrir um áratug. Eftir útskrift opnaði hún búðina Beyond The Valley í London sem seldi list eftir ýmsa listamenn. Búðin gekk vel og rak hún hana í átta ár.





„Eftir útskrift vissi ég ekki alveg hvað ég ætti að gera þannig að ég opnaði þessa búð. Það var ótrúlega gaman og hún gekk mjög vel. Ég náði hins vegar mjög lítið að einbeita mér að minni eigin list. Árið 2011 þegar ég var ólétt af öðru barninu mínu þá hugsaði ég með mér að mig langaði að koma meira af þessum hugmyndum mínum út og fá bara að einbeita mér að listinni,“ segir hún.

Margverðlaunuð 

Í kjölfarið stofnaði Kristjana eigin vinnustofu sem ber nafnið KSW Studio og hefur vaxið hratt síðan. Hún sér ekki eftir því enda hafa síðustu ár verið ævintýraleg og nú hefur hún fjóra aðila hjá sér í fullri vinnu. Hún hefur fengið fjölda verðlauna; meðal annars Clio-verðlaunin og fyrstu verðlaun á alþjóðlegu New York Festival auglýsingaverðlaunahátíðinni. 

Hönnun Kristjönu hefur vakið mikla athygli. Verkin eru af ýmsu tagi, meðal annars hefur hún hannað fatnað, heimilisvöru og efni þar sem grafík hennar er í aðalhlutverki. Einnig hnattlíkön, veggfóður, vegglistaverk og húsgögn.

Fjallað hefur verið um hönnun hennar í mörgum helstu hönnunartímaritum heims. Auk þess hefur hún tekið þátt í fjölmörgum stórum sýningum, nú síðast London Design Festival sem haldin var í september.



Kristjana S. Williams
Vinnur að barnabók 

Það er nóg að gera hjá Kristjönu. Ásamt því að vera að stækka vinnuaðstöðu sína þá er hún meðal annars að vinna að nýrri barnabók. „Bókin verður listaverk með stórum myndum. Þetta verður barnabók en líka fyrir fullorðna. Þetta verður svona bók sem er meira en bók og gaman að eiga,“ segir hún.

Listakonan hefur búið í London undanfarna tvo áratugi en segir hugann vera farinn að sækja heim. „Fyrst eftir að ég flutti út lagði ég mikið í að vinna með dýr og framandi landslag sem mér fannst vanta á Íslandi. Nú er ég farin að sækja aðeins aftur heim og farin að vinna meira með þessa skandinavísku liti. Í næsta verkefni mínu mun ég sækja mikið heim til Íslands.“

Hönnunin til á Íslandi 

Þrátt fyrir að Kristjana hafi lítið verið á Íslandi síðustu ár þá er hönnun hennar þó fáanleg hér á landi í Kiosk á Laugavegi. „Það hefur verið gaman að fá að taka þátt í því ævintýri og gott að vera með annan fótinn heima á Íslandi,“ segir hún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×