Fótbolti

Margrét Lára lagði upp mark í tapi Kristianstads

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Margrét Lára lagði upp mark en það dugði ekki til gegn Örebro.
Margrét Lára lagði upp mark en það dugði ekki til gegn Örebro. vísir/stefán
Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur voru báðir í byrjunarliði Kristianstads sem tapaði 4-2 fyrir Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Kristianstads, sem Elísabet Gunnarsdóttir stýrir, er í 7. sæti deildarinnar með 16 stig eftir 11 leiki.

Margrét Lára sagði upp annað mark Kristianstads en hún lék allan leikinn líkt og systir sín sem fékk að líta gula spjaldið á 37. mínútu.

Margrét Lára hefur skorað fjögur mörk í 10 leikjum á þessu tímabili en Elísa hefur leikið alla 11 leiki liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×