Lífið

Margir til liðs við góðan málstað

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Anna Jónsdóttir, Axel Kristinsson (einn prestanna þriggja), Sigurður Bragason, Kolbeinn Ketilsson, Krisztina Kalló Szklenár organisti og Viðar Gunnarsson.
Anna Jónsdóttir, Axel Kristinsson (einn prestanna þriggja), Sigurður Bragason, Kolbeinn Ketilsson, Krisztina Kalló Szklenár organisti og Viðar Gunnarsson. Vísir/Eyþór Árnason
Stórtónleikar verða í Langholtskirkju á laugardaginn klukkan 16, þeir eru til styrktar langveikum börnum. Trúbador, einsöngvarar, hljóðfæraleikarar og fjöldi kóra munu flytja þar fallega efnisskrá.

Sigurður Bragason barítón er listrænn stjórnandi tónleikanna. „Það er verið að afla fjár fyrir langveik börn og ífurlegur fjöldi fólks tekur þátt og gefur sína vinnu,“ segir hann.

Sigurður er líka höfundur viðamikils tónverks sem verður frumflutt undir lokin og segir það samið fyrir þessa tónleika, þó í því séu líka eldri stef.



„Verkið nefnist Passía Krists og er við ljóð Valdimars Lárussonar. Flytjendur eru 220 manna kór og hinum megin í kirkjunni er bergmálskór. Karlatríó er í hlutverki prestanna og barnakór úr Háteigsskóla tekur þátt, auk píanó- og orgelleikara.

Einsöngvarar eru Anna Jónsdóttir, Kolbeinn Ketilsson, Kristín Sigtryggsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir og Viðar Gunnarsson. Svo koma Sólrún Bragadóttir, Diddú, Svavar Knútur og fjölmargir kórar með sitt framlag, þar fyrir utan.“

Þetta er í sjötta skipti sem Sigurður efnir til styrktartónleika sem hann samdi líka tónverk fyrir, þó að passían sé það stærsta.

„Kveikjan að fyrstu tónleikunum var sú að einn af félögum í kór sem ég stjórnaði stórslasaðist þegar hann féll niður af húsi sem hann var að vinna við og varð eftir það mikið fatlaður. Þá voru haldnir styrktartónleikar fyrir fatlaða – það var upphafið,“ rifjar Sigurður upp.



Hann segir ótrúlega vel hafa gengið að fá fólk til að koma fram. „Þó er meira en að segja það að æfa upp stór verk – eins og flutt er í lokin – verk sem fólk hefur aldrei heyrt eða séð áður.“

Hann bendir á að ekkert mundi þó aflast ef áheyrendur væru ekki tilbúnir að mæta og borga sig inn. „Það er bæði dýrmætt og gaman að fá marga til liðs við málstaðinn,“ segir hann. „Þeim fylgir mikill kraftur.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 9. mars 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×