Formúla 1

Marchionne: Ferrari þarf að taka áhættur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sergio Marchionne ætlar sér að koma Ferrari í fremstu röð.
Sergio Marchionne ætlar sér að koma Ferrari í fremstu röð. Vísir/Getty
Nýr framkvæmdastjóri Ferrari, Sergio Marchionne segir að Ferrari þurfi að taka áhættur og standa sig til að komast aftur á toppinn.

Ítalsk-kanadíski framkvæmdastjórinn tók við keflinu af Luca di Montezemolo nýlega. Marchionne gerði strax grein fyrir ætlan sinni að koma Ferrari aftur í fremstu röð.

„Við verðum að standa okkur og við verðum að ná toppnum fljótt,“ sagði hinn 62 ára framkvæmdastjóri bæði Ferrari og Fiat. „Það þarf að gera það sem þarf að gera. Okkur gæti mistekist en við höfum engu að tapa. Tökum áhættuna,“ bætti hann við.

Hann viðrukennir að hafa verið æfa reiður vegna frammistöðu liðsins á heimabraut þess á Ítalíu, Monza. Hann staðfestir þó að Ferrari sé ekki að hætta í formúlu 1, einhverjar slíkar raddir hafa heyrst að undanförnu.

„Ég get lifað með tímabundinni óheppni, en hún má ekki verða einkenni vörumerkisins,“ sagði Marchionne að lokum.


Tengdar fréttir

Framtíð Fernando Alonso í óvissu

Tvöfaldi heimsmeistarinn Fernando Alonso hefur ekkert viljað staðfesta hvar hann muni aka á næsta ári. Hann hefur nú útilokað að taka sér frí í eitt ár.

Bílskurinn: Rólegt í Rússlandi

Eftir kappakstur helgarinnar á spánýrri braut í Sochi, Rússlandi þar sem Lewis Hamilton jók forskot sitt á toppi stigakeppni ökumanna, er kominn tími til að skoða hvað gerðist. Fimm fyrstu hringirnir voru stútfullir af hasar, eftir það tók við rólegur og stöðugur kappakstur.

Bílskúrinn: Dimmur dagur á Suzuka

Fögnuður Mercedes liðsins var frekar lágstemmdur eftir að hafa landað fyrsta og öðru sæti í keppninni í Japan. Ástæðan var slys Jules Bianchi, ökumanns Marussia liðsins sem var fluttur á sjúkrahús með alvarlega höfuðáverka.

Pirelli breytti dekkjavali vegna ummæla Massa

Felipe Massa, ökumaður Williams liðsins í formúlu 1 sagði dekkjaval Pirelli fyrir brasilíska kappaksturinn "hættulegt, mjög hættulegt,“ og "óásættanlegt.“

McLaren með stóra uppfærslu

Eric Boullier, keppnisstjóri McLaren segir að liðið muni mæta til keppni í Abú Dabí með mikið uppfærðan bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×