Innlent

Mannréttindaskrifstofan háð styrkjum einkaaðila

Ef ekki væri fyrir opinbera styrki gæti Mannréttindaskrifstofa Íslands ekki haldið uppi sómasamlegri starfsemi, segir framkvæmdastjóri skrifstofunnar. Allt fé sem Mannréttindaskrifstofan fær er eyrnamerkt sérstökum verkefnum.

Mikil umræða skapaðist um það fyrir tæpum tveimur árum þegar Mannréttindaskrifstofa Íslands var tekin af fjárlögum en síðan þá hefur hún eingögnu fengið verkefnatengda styrki frá hinu opinbera. Skrifstofan var á meðal þeirra sem fengu styrk úr styrktarsjóði Baugs í gær en að sögn Guðrúnar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofunnar, skiptir það sköpum fyrir hana að fá styrki frá einkaaðilum. Meira fjármagn fékkst reyndar frá hinu opinbera í ár en í fyrra, eða 4,6 milljónir, en Guðrún segir að eins og staðan sé núna þurfi Mannréttindaskrifstofan að treysta að miklu leyti á einkaaðila.

Þegar skrifstofan var tekin af fjárlögum var hún til húsa að Laugavegi sem til stóð að festa kaup á. Núna er hún hins vegar í mun minna tímabundnu húsnæði að Hafnarstræti 20. Aðspurð hvort ekki hafi verið rætt við stjórnvöld um að setja Mannréttindaskrifstofuna aftur á fjárlög segir Guðrún að viðræður séu í gangi en þær gætu tekið nokkurn tíma. Núverandi ástand gangi a.m.k. ekki og bendir hún á að Mannréttisdaskrifstofa Íslands sé eina sinnar tegundar í Evrópu sem ekki fái opinberan stuðning við daglegan rekstur.

 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×