Innlent

Manndráp við Miklubraut: Hinn grunaði á fertugsaldri

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Viðbúnaður var við Miklubraut í gær.
Viðbúnaður var við Miklubraut í gær. Vísir/JÓE
Karlmaður á fertugsaldri er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um að hafa orðið manni að bana í húsi við Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

„Lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás í áðurnefndu húsi kl. 21.55, en þegar hún kom á staðinn örskömmu síðar fannst karlmaður um sextugt sem hafði orðið fyrir líkamsárás og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi,“ segir í tilkynningunni.

Lögregla lagði hald á eggvopn sem grunur leikur á að hafi verið notað við verknaðinn.

Hinn látni bjó í húsinu og meintur gerandi sömuleiðis. Enginn annar er grunaður í málinu. Lögð verður fram krafa um gæsluvarðhald yfir hinum handtekna síðar í dag.

Rannsókn málsins er á frumstigi samkvæmt lögreglu og mun hún ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×