Fótbolti

Mandzukic genginn í raðir Atletico Madrid

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Atletico Madrid staðfesti rétt í þessu að félagið hefði gengið frá kaupunum á króatíska framherjanum Mario Mandzukic frá Bayern Munchen. Mandzukic skrifaði undir fjögurra ára samning hjá Atletico.

Mandzukic sem gekk til liðs við Bayern Munchen fyrir tveimur árum vann alla titla sem í boði voru á tveggja ára tímabili hjá félaginu. Í ljós kom hinsvegar að hann og Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Bayern áttu ekki samleið og komust aðilar að samkomulagi að best væri fyrir Mandzukic að finna sér nýtt félag.

Mandzukic er Íslendingum kunnugur en hann fékk rautt spjald í leik Króatíu og Íslands ytra fyrir ljóta tæklingu á Jóhanni Berg Guðmundssyni eftir að hafa skorað fyrsta mark Króata í leiknum.

Talið er að fljótlega fylgi tilkynning frá Atletico Madrid þar sem félagsskipti Diego Costa til Chelsea verða staðfest en Atletico hefur verið að leita að eftirmanni Costa áður en gengið væri frá félagsskiptunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×