Enski boltinn

Man. Utd ætlar ekki að bjarga Vidic

Nemanja Vidic.
Nemanja Vidic. vísir/getty
Ítalíu-ævintýri Nemanja Vidic og hefur ekki gengið sem skildi og hann vill komast frá Inter.

Í kjölfarið fór í gang orðrómur um að Man. Utd hefði áhuga á að taka Vidic aftur til sín enda hefur verið bras á varnarleik United.

Félagið hefur aftur á móti engan áhuga á því að bjarga Vidic frá Inter. Hans tími á Old Trafford er liðinn.

Vidic hefur ekki átt upp á pallborðið hjá Roberto Mancini síðan hann tók við liðinu og kemst ekki lengur í liðið. Hann er búinn að fá nóg og ef eitthvað lið hefur áhuga þá gæti hann komist frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×