Fótbolti

Man. City mætir Barcelona - drátturinn í 16 liða úrslitin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lionel Messi fer framhjá Vincent Kompany í leik liðanna fyrr á þessu ári.
Lionel Messi fer framhjá Vincent Kompany í leik liðanna fyrr á þessu ári. vísir/getty
Stórleikur 16 liða úrslita Meistaradeildar Evrópu í fótbolta verður viðureign Englandsmeistara Manchester City gegn Barcelona, en liðin mættust á sama stigi keppninnar í fyrra og þá höfðu Börsungar betur.

Chelsea á einnig fyrir höndum mjög erfitt verkefni, en lærisveinar José Mourinho mæta Zlatan Ibrahimovic og félögum í Paris Saint-Germain. Liðin mættust einnig í fyrra en þá í átta liða úrslitum.

Arsenal var heppnara með dráttinn í 16 liða úrslitin en undanfarin ár. Arsene Wenger fer á kunnuglegar slóðir með sitt lið, en Skytturnar mæta franska liðinu Monaco sem Wenger þjálfaði frá 1987-1994.

Ítalíumeistarar Juventus mæta Dortmund, Spánarmeistarar Atlético mæta Bayer Leverkusen og Evrópumeistarar Real Madrid mæta Schalke.

Drátturinn í beinni:

Svakalegir leikir í boði í 16 liða úrslitunum. PSG og Chelsea mætast og Manchester City mætir Barcelona annað árið í röð. Viðureign Juventus og Dortmund ætti að vera áhugaverð líka. Drættinum er lokið.

Paris Saint-Germain - Chelsea

Manchester City - Barcelona

Bayer Leverkusen - Atlético

Juventus - Dortmund

Schalke - Real Madrid

Shakhtar - Bayern München

Monaco - Arsenal

Basel - Porto

11.10 Giorgio Marchetti, mótastjóri UEFA, fer yfir reglurnar. Þær eru alltaf eins. Lið sem voru saman í riðli geta ekki mæst og lið frá sama landi geta ekki mæst. Liðin sem höfnuðu í öðru sæti sinna riðla spila heimaleikinn fyrst.

11.07 Karl-Heinz Riedle er kynntur til leiks. Hann er sendiherra úrslitaleiks Meistaradeildarinnar 2015 sem fram fer í Berlín í maí. Riedle skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum 1997 þegar Dortmund vann Juventus.

11.04 Gianni Infantino, framkvæmdastjóri UEFA, opnar þetta að vanda. Hann er hæstánægður með gæðin í Meistaradeildinni á þessari leiktíð. Verið að keyra í gang myndband með tilþrifum frá liðunum 16 sem eru í pottinum.

11.00 Útsendingin er hafin frá Sviss. Menn eiga nú eftir að blaðra aðeins og eflaust veita einhver verðlaun.

Liðin sem unnu sinn riðil: Atlético Madrid, Real Madrid, Monaco, Dortmund, Bayern München, Barcelona, Chelsea, Porto.

Liðin sem höfnuðu í öðru sæti: Juventus, Basel, Bayer Leverkusen, Arsenal, Man City, PSG, Schalke, Shakhtar Donetsk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×