Tíska og hönnun

Maísbaun sem poppast út

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Birna Karen Einarsdóttir fatahönnuður er með Birna Pop-up Shop á Eiðistorgi til 12. desember.
Birna Karen Einarsdóttir fatahönnuður er með Birna Pop-up Shop á Eiðistorgi til 12. desember. Vísir/Stefán
Sem stendur er ég að vinna að verkefninu „Birna Pop-up Shop“ sem gengur út á að hanna og selja vandaðar flíkur sem eru einstakar að því leyti að bæði efnin og flíkurnar eru framleidd í mjög takmörkuðu upplagi,“ segir Birna Karen Einarsdóttir fatahönnuður spurð út í pop-up verslunina sem hún er með á Eiðistorgi þessa dagana.

Margir velta því eflaust fyrir sér hvað pop-up verslun sé, en um er að ræða milliliðalausa verslun, sem staðsett er hér í dag, farin á morgun og í tímabundnu húsnæði.

„Ég hugsa nú bara alltaf um poppkorn þegar ég hugsa um pop-up, maísbaun sem poppast út,“ segir Birna létt í bragði og bætir við að verslunin verði opin til 12. desember alla virka daga og um helgar.

Birna hefur verið búsett í Kaupmannahöfn, þar sem hún hefur búið í tuttugu og fjögur ár, en þetta er í annað skipti sem hún kemur til Íslands með Birna Pop-up Shop.

„Ég er búin að vera að vinna við hönnun og framleiðslu í yfir tuttugu ár, í ýmiss konar fjölbreyttum verkefnum. Núna er fókusinn bara á Birna Pop-up Shop á Íslandi. Það er í lygilega mörgu að snúast þegar kemur að framleiðslu á fatnaði sem er framleiddur í takmörkuðu upplagi og úr sérvöldum efnum,“ segir Birna.

Framleiðslan hefur verið með nýju sniði undanfarið en Birna hefur unnið með lítilli saumastofu í Póllandi og framleiðir aðeins tvö til tíu stykki í hverju efni.

„Hugmyndin er að bjóða konum upp á að kaupa fatnað sem er ekki bundinn við nein sérstök „season“ og fæst í mjög takmörkuðu upplagi á kostakjörum. Það er óneitanlega gaman að vera í einstakri flík og eins og áður er mikið lagt upp úr gæðum í fatnaði og klæðilegum sniðum,“ segir hún.

Þar sem Birna Pop-up Shop er milliliðalaus verslun, frá hönnuði til neytandans, er möguleiki að halda verðinu niðri og bjóða upp á hönnun á viðráðanlegu verði.

„Þetta hefur gengið virkilega vel, það er upplagt að líta inn á Eiðis­torg, ná sér í flík fyrir jólin eða í jólapakkann,“ segir Birna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×