Innlent

Magni rokkstar skilinn

Magni Ásgeirsson og Eyrún Haraldsdóttir
Magni Ásgeirsson og Eyrún Haraldsdóttir
Magni rokkstjarna Ásgeirsson og eiginkona hans Eyrún Haraldsdóttir hafa slitið samvistum. Í yfirlýsingu frá þeim, sem birtist í DV í dag, segir að þau hafi fjarlægst hvort annað tilfinningalega, í kjölfar mikilla breytinga sem urðu á högum Magna á nýliðnu ári.

Þau segjast munu vinna í sameiningu að uppeldi sonar síns, Marinós, og biðja um næði til þess að vinna úr erfiðum málum, án íþyngjandi áreitis.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×