Lífið

Mættu sem leynigestir í brúðkaup á Mallorca

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir skrifar
Heiða og Doddi og þýsku brúðhjónin.
Heiða og Doddi og þýsku brúðhjónin. Vísir
Ung hjón búsett í Breiðholti voru stödd á Grenivík sumarið 2013 þegar þau heyrðu af bónorði ferðamanns á bryggjunni. Án þess að hika gripu þau gítar, gengu niður á bryggju og spiluðu og sungu lag Tom Waits, Little Trip to Heaven.

Í ljós kom að um þýskt par var að ræða og ævintýrið vatt heldur betur upp á sig þegar brúðurin tilvonandi hafði upp á þeim eftir krókaleiðum og bað þau að spila í brúðkaupi sínu á Mallorca á Spáni sem fram fór nú í sumar.

„Við vorum lengi að hugsa okkur um en ákváðum svo að svona boð fær maður bara einu sinni á ævinni,“ segja þau Sigríður Heiða Hallsdóttir og Þórður Björn Ágústsson en ætlun brúðarinnar var að koma brúðgumanum á óvart.

Þau héldu utan í sumar og vöktu mikla lukku þegar þau birtust í þann mund er brúðhjónin sögðu frá bónorðinu ævintýralega á Íslandi og íslensku „álfunum“ sem hófu óvænt upp raust sína á bryggjunni. Eftir að þau höfðu sungið lagið var ekki þurrt auga í salnum.

Fjallað verður um þessa afdrifaríku skyndiákvörðun hjónanna í Íslandi í dag í kvöld og sýnt brot úr myndbandi þegar þau komu þýska brúðgumanum á óvart.


Tengdar fréttir

Afdrifaríkt flipp söngpars á Grenivík

Hjón sem ákváðu í flippi að syngja og leika fyrir væntanlega brúðguma á biðilsbuxunum eru á leið til Mallorca á næsta ári til að spila í brúðkaupinu. Svona getur flipp á Grenivík opnað tækifæri í Suður-Evrópu segir söngkona dúettsins Óreiða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×