Skoðun

Mælikvarðar lífsgæða og velferðar

Svandís Svavarsdóttir skrifar
Mannkynið stendur á tímamótum í samskiptum sínum við náttúruna. Við göngum hratt á óendurnýjanlegar auðlindir, fjölgun mannkyns er hömlulaus og áhrif okkar á umhverfið virðast takmarkalaus. Okkur Íslendingum hættir til að álykta að þetta eigi ekki við um okkur og að við séum heimsbyggðinni til mikillar fyrirmyndar. En það er öðru nær ef marka má niðurstöður Sigurðar Eybergs Jóhannessonar og dr. Brynhildar Davíðsdóttur, dósents við Háskóla Íslands, á vistspori Íslendinga, en sá mælikvarði hefur aldrei áður verið lagður á íslenskt samfélag.

21 JörðNiðurstöðurnar eru sláandi. Það þyrfti 21 Jörð ef allt mannkynið lifði við sömu kjör og Íslendingar. Við sláum öll fyrri met hvað þetta varðar.

Fræðimönnunum sem gerðu útreikningana leist nú ekki betur en svo á niðurstöðuna að þeir prófuðu að taka fiskveiðar út úr jöfnunni. Þá varð niðurstaðan sú að mannkynið þyrfti sex Jarðir ef allir nýttu náttúruauðlindir af sama kappi og við. Auðvitað eru útreikningar sem þessir umdeilanlegir en þeir gefa okkur engu að síður ákveðna hugmynd um það hver staða okkar er í heiminum, hversu rík við erum af náttúruauðlindum og hversu langt við höfum gengið nú þegar í því að nýta þær.

Að mínu mati þurfum við að temja okkur meiri hófsemd og meiri aga. Við þurfum ekki að gleypa allt sem á vegi okkar verður, eins og Andri Snær Magnason minnti okkur svo eftirminnilega á í greininni Í landi hinna klikkuðu karlmanna: „Við erum nú þegar með allt sem nútímasamfélag þarfnast. Það þarf bara að sinna því sem við höfum þegar byggt upp, fá arð af því sem þegar hefur verið virkjað og fara betur með það sem þegar hefur fiskast."

Það er hárrétt hjá Andra, við þurfum ekki alltaf að virkja meira og veiða meira. Það sem okkur vantar raunverulega meira af eru gæði, gæði í nýtingu, gæði í framleiðslu, gæði í stjórnsýslu og síðast en ekki síst lífsgæði.

Nýir mælikvarðarÞví er haldið fram að lífsgæði almennings verði ekki aukin nema með auknum hagvexti. En það er ekki beint orsakasamhengi milli hagvaxtar og aukinna lífsgæða. Samkvæmt Stöðuskýrslu Félagsvísindastofnunar og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá árinu 2009 jókst ójöfnuður á tímum mikils hagvaxtar árin fyrir hrun. Ójöfnuðurinn jókst hraðar hér en í öðrum löndum þegar ráðstöfunartekjur tekjuhæsta hópsins hækkuðu langt umfram aðra hópa í samfélaginu.

Þá vekur athygli að í hagvextinum miðjum jókst notkun geðlyfja og var notkun þeirra hér á landi mun tíðari en í hinum OECD-löndunum. Niðurstöður umræddrar skýrslu benda til að áherslur áranna fyrir hrun hafi ekki aukið lífsánægju Íslendinga. Við hljótum því að spyrja okkur hvort réttir mælikvarðar séu notaðir þegar hagsæld þjóðarinnar er metin. Það er ein mikilvægasta spurningin sem við þurfum að svara við endurreisn samfélagsins.




Skoðun

Sjá meira


×