Innlent

Maðurinn kominn niður

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Af vettvangi.
Af vettvangi. Vísir/Daníel
Lögregla höfuðborgarsvæðisins og sérsveit ríkislögreglustjóra er með töluverðan viðbúnað í iðnaðarhverfi við Vagnhöfða í Reykjavík. Uppi á húsnæði verkstæðis stendur maður og hrópar að þeim ókvæðisorð. Mbl.is greindi fyrst frá.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur maðurinn verið á þaki hússins frá því klukkan 14:30 en hann mun vera veikur á geði. Fjölskyldumeðlimir mannsins eru mættir á svæðið ásamt samningamanni til að hjálpast að við að koma manninum niður.

Sjúkrabíll hefur verið sendur á vettvang til viðbótar við þá lögreglubíla sem þangað eru mættir.

Uppfært klukkan 17:00

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er maðurinn kominn niður af þakinu. Fór hann niður um hlera á þakinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×