Innlent

Maður veittist að næturverði: Mátti ekki taka kvenkyns gest inn á hótelherbergi

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Maðurinn var ósáttur við reglur gistiheimilisins.
Maðurinn var ósáttur við reglur gistiheimilisins. Vísir/Pjetur
Kallað var eftir aðstoð lögreglu eftir að karlmaður veittist að næturverði á gistiheimili í miðborginni laust fyrir klukkan hálf sex í morgun.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu segir að maðurinn hefði veist að næturverðinum eftir að hann meinaði honum að taka kvenkyns næturgest með sér inn á herbergi en slíkt er andstætt reglum hótelsins. 

Að endingu yfirgáfu karlmaðurinn og konan gistiheimilið saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×