Sport

Lyfjaskandallinn í frjálsum verri en spillingin hjá FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Johnson var sigursæll á sínum ferli.
Michael Johnson var sigursæll á sínum ferli. Vísir/Getty
Ólympíumeistarinn og spretthlaupsgoðsögnin Michael Johnson telur frjálsíþróttirnar hafi orðið verr úti en knattspyrnan þegar kemur að spillingarmálum en báðar íþróttagreinar hafa verið mikið í heimsfjölmiðlum að undanförnu fyrir allt annað en afrek íþróttafólksins síns.

Michael Johnson vann fern Ólympíugullverðlaun í spretthlaupum á sínum tíma og er ein stærsta stjarnan sem frjálsíþróttaheimurinn hefur eignast.

„Spillingin í tengslum við lyfjamál í frjálsum íþróttum er verri en sú sem fótboltinn stendur frammi fyrir," sagði Michael Johnson í viðtali á BBC. Fótboltinn glímir við mútumál og peningagráða forystumenn innan fótboltans en skýrsla sem sýnir fram á umfangsmikla notkun ólöglegra lyfja meðal verðlaunafólks á stórmótum í frjálsum íþróttum hefur svert ímynd íþróttarinnar um ókomna tíð.

Þrír yfirmenn innan Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins voru dæmdir í lífstíðarbann á dögunum fyrir þátttöku sína í lyfjahneykslinu sem nú skekur frjálsíþróttaheiminn og áður höfðu allir rússneskir frjálsíþróttamenn verið settir í bann frá öllum keppnum vegna þess að rússneska sambandið hafði unnið markvisst að því að svindla á  lyfjaprófum.

Sepp Blatter, forseti FIFA, og Michel Platini, forseti UEFA, voru báðir dæmdir í átta ára bann frá knattspyrnu fyrir spillingu og margir háttsettir menn innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins höfðu áður verið handteknir vegna spillingarmála.

„Ef við setjum okkur i spor fórnarlamba þessa lyfjahneykslis þá er þetta svo sannarlega verra en hjá fótboltanum. Þarna var verið á svindla á íþróttafólki sem fær aldrei að standa á verðlaunapallinum og upplifa þá stund sem þau í raun unnu fyrir með árangri sínum," sagði Michael Johnson.  

Michael Johnson er þó ekki hrifinn af því að setja alla rússneska íþróttamenn í bann því það bitni á hreinum íþróttamönnum sem hafa ekkert til saka unnið.

Michael Johnson er hinsvegar á því að þetta mál kalli á algjöra hreinsun innan Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins og að það þurfi að skipuleggja forystuna upp á nýtt. „Það var þessi stjórn og þessar stjórnunaraðferðir sem leyfðu þessari spillingu að viðgangast," sagði Johnson.  

Michael Johnson er samt ekki á því að hreinsa eigi út öll gildandi heimsmet og byrja upp á nýtt.

„Ég skil ekki hvernig endursetning á öllum heimsmetum eigi að hjálpa okkur að glíma við það að fólk er að svindla. Það býr ekki til hreina keppni eða kemur í veg fyrir að fólk muni svindla," sagði Michael Johnson.

Michael Johnson á enn heimsmetið í 400 metra hlaupi og hann átti líka heimsmetið í 200 metra hlaupi í tólf ár eða síðan að Usain Bolt bætti það á Ólympíuleikunum í Peking 2008.


Tengdar fréttir

FIFA hefur yfirgefið mig

Sepp Blatter, brottrekinn forseti FIFA, vorkennir sjálfum sér í nýju viðtali við þýskt tímarit.

Platini í nýju klandri

Var viðstaddur verðlaunaafhendingu í Dúbaí þrátt fyrir langt bann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×