Skoðun

Lýðræðisvæðum sjávarútveginn

Jón Valur Jensson skrifar
Stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar er „endurskoðun fiskveiðistjórnunar frá grunni og frelsi í sjávarútvegsmálum. Stóraukið frelsi í strandveiðum. Fiskveiðiauðlindin verði sameign þjóðarinnar skv. stjórnarskrá. Erlent eignarhald verði afnumið í sjávarútvegi.“

Stóraukið frelsi til smábátaveiða merkir í raun margföldun í veiði á bolfisk og kvótalausar makrílveiðar.

Þá er okkar stefna 6% skattafsláttur af tekjum sjómanna.

Sumir hafa talað gegn sjómannaafslætti sem „mismunun“, sem ekki sé þörf á fyrir stétt sem hafi tiltölulega góðar tekjur. Þar á móti kemur, að nánast engin umræða er um að hátekjumenn í öðrum stéttum eru bæði með ofurbónusa og önnur fríðindi ofan á laun sín og setjast ekki til vinnu, þegar ráðnir eru, fyrr en þeir hafa tryggt sér milljónatuga-starfslokasamninga!

Enginn þarf að öfunda sjómenn, þeir leggja mikið til samfélagsins, stór hluti launa þeirra er með hartnær 50% skattlagningu, án þess að þeir notfæri sér samfélagsþjónustu í sama mæli og aðrir. Þeir eru langtímum saman fjarri fjölskyldum sínum, vinna gjarnan 12 tíma eða lengur á dag, eru með styttri starfsævi en aðrir og meiri slysatíðni. Áhætta þeirra og framlag til þjóðlífsins verðskuldar því viðurkenningu.

Þar að auki er gróði af smáútgerð jákvæður kostur, ekki löstur. Hann smyr samfélög strandbyggðanna með aukinni veltu, útsvörum og öðrum gjöldum. Það er einungis jákvætt ef efnahagur sjómanna hjálpar þeim ekki aðeins að borga hratt niður skuldir á dýrum bátum sínum og tæknibúnaði, sem þar er þörf á og skylda til, heldur líka til að geta með tímanum hjálpað börnum sínum að kaupa sér sjálf bát til útgerðar.

Þá verður líflegra að líta til athafnasvæðanna við hafnir landsins: dæmið snýst við, og aflaheimildir hætta að streyma þaðan til vellríkra fákeppnisútgerða, en haldast og aukast hjá fólkinu sjálfu, með lýðræðisvæðingu þessa gamla bjargræðisvegar fólksins, með veiðiaðferðum sem aldrei geta skemmt sjávarbotninn eða gengið á fiskistofna landsins.

Þetta vill Þjóðfylkingin tryggja sjómannafjölskyldum og strandbyggðum landsins.

XE fyrir Jens G. Jensson í Norðvestur- og Guðmund Þorleifsson í Suðurkjördæmi!

Höfundur þekkir af eigin raun til sjávarútvegsmála, einkum á togurum frá Seyðisfirði, Vestfjörðum og sunnanlands.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×