Fótbolti

Lukaku í stuði | Úrslit kvöldsins

Everton hélt uppi heiðri enskra knattspyrnufélaga í kvöld er liðið komst áfram í 16-liða úrslitin.

Everton lagði Young Boys frá Sviss, 3-1, og 7-2 samanlagt. Auðvelt verkefni fyrir strákana úr Guttagarði.

Romelu Lukaku í stuði með tvö mörk og Kevin Mirallas skoraði einnig snoturt mark. Lukaku skoraði fimm mörk í þessum leikjum gegn Young Boys.

Everton er því eina enska liðið sem komst í 16-liða úrslitin.

Úrslit:

Club Brugge-AaB  3-0

Brugge fer áfram 6-1 samanlagt.

Athletic Bilbao-Torino  2-3

Torino fer áfram 4-5 samanlagt.

Sporting-Wolfsburg  0-0

Wolfsburg fer áfram 0-2 samanlagt.

Olympiakos-Dnipro  2-2

Dnipro fer áfram 2-4 samanlagt.

Napoli-Trabzonspor  1-0

Napoli fer áfram 5-0 samanlagt.

Feyenoord-Roma  1-2

Roma fer áfram 2-3 samanlagt.

Lukaku jafnar. Lukaku kemur Everton yfir. Mirallas kemur Everton í 3-1.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×