Enski boltinn

Lucas Leiva kom Liverpool yfir á móti Plymouth | Sjáðu markið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Nú stendur yfir leikur leikur Plymouth Argyle og Liverpool í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Þetta er endurtekinn leikur þar sem liðin skildu jöfn, markalaus, á Anfield í fyrri leiknum.

Lucas Leiva, miðjumaður Liverpool, kom sínu liði yfir á 19. mínútu leiksins þegar hann stangaði hornspyrnu samlanda síns Philippe Coutinho í netið.

Leikið verður til þrautar í kvöld en Plymouth spilar í D-deild enska boltans og verður róðurinn nú þungur fyrir heimamenn.

Mark Lucasar má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×