Formúla 1

Luca di Montezemolo hættir hjá Ferrari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Montezemolo þungt hugsi á Monza.
Montezemolo þungt hugsi á Monza. Vísir/Getty
Luca di Mintezemolo hefur sjálfur staðfest að hann ætli að láta af störfum sem forseti Ferrari í næsta mánuði, eftir tveggja áratuga starf.

Eftir erfiða byrjun Ferrari á nýjum tímum í Formúlu 1 hefur framtíð Montezemolo verið mikið rædd undanfarið. Túrbó tímabilið hefur ekki farið af stað eins og Ferrari hefði óskað, liðið er sem stendur í fjórða sæti í keppni bílamsiða.

Montezemolo hafði sjálfur fullyrt um síðustu helgi að hann væri ekki að fara neitt í bráð. Hins vegar virðist sem gagnrýni Sergio Marchionne, forseta Fiat, eiganda Ferrari hafi gert útslagið.

„Ég vil ekki sjá ökumennina okkar í sjöunda og tólfta sæti. Að sjá þá rauðu í þessu ástandi, með bestu ökumennina, afbragðs aðstöðu, virkilega góða verkfræðinga, að sjá þetta allt og hugsa svo til þess að við höfum ekki unnið síðan 2008,“ sagði Marchionne.

Marchionne mun sjálfur taka við stjórn hjá Ferrari að minnsta kost tímabundið. Hugsanlegt er að þessi uppstokkun skapi pláss fyrir endurkomu Ross Brawn, eins sigursælasta liðsstjóra sem um getur í Formúlu 1.

„Ferrari er besta fyrirtæki í heiminum. Það hafa verið forréttindi og heiður að stjórna því. Ég hef gefið því alla mína orku og ástríðu í gegnum árin. Líkt og fjölskylda mín mun Ferrari halda áfram að vera það mikilvægasta í mínu lífi,“ sagði Montezemolo í yfirlýsingu sinni.


Tengdar fréttir

Endurhæfing Schumacher færð á heimili hans

Talskona Michael Schumacher staðfesti í dag að Schumacher hefði verið fluttur af spítalanum í Lausanne á heimili sitt þar sem endurhæfingin mun halda áfram.

Alonso verður áfram hjá Ferrari

Þrátt fyrir mikinn áhuga frá McLaren þá hefur Fernando Alonso ákveðið að keyra áfram fyrir Ferrari.

Ferrari efast um að hægt verði að ná Mercedes 2015

Ferrari liðið hyggst mæta með fullkomlega endurhannaðan bíl til leiks 2015 en efast um að það dugi til að ná Mercedes. Gæði Mercedes vélarinnar séu of mikil til að hægt sé að snúa taflinu við í einu stökki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×