Bíó og sjónvarp

Loksins fær Jessica Lange heiðursverðlaun Kirk Douglas

The Santa Barbara International Film Festival tilkynnti í gær að leikkonan Jessica Lange myndi hljóta hin árlegu Kirk Douglas verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á ferlinum.

Verðlaunin verða veitt Lange þann 16. nóvember næstkomandi, hugsanlega af Douglas sjálfum.

Lange hefur tvisvar hlotið Óskarsverðlaun og tvisvar Emmy-verðlaun.

„Jessica Lange býr yfir þremur lykilkostum þess að gera það gott í þessum fáránlega iðnaði, hæfileikum, fegurð og greind,“ segir Douglas um kollega sinn.

Douglas verður 98 ára gamall viku fyrir viðburðinn.

Verðlaunin eru veitt í níunda sinn í ár en áður hafa hlotið viðurkenninguna 
Kirk Douglas sjálfur, Harrison Ford, Quentin Tarantino, John Travolta, Ed Harris, sonur Douglas, Michael Douglas, Robert De Niro, og á síðasta ári, Forest Whitaker.

Lange sem er 65 ára var tilnefnd til Emmy-verðlaunanna fyrr í mánuðinum sem besta leikkona í míníseríu fyrir leik sinn í American Horror Story: Coven.

Jessica Lange er ein virtasta leikkona sinnar kynslóðar. Hún hefur sex sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, en hlaut fyrst Óskarinn fyrir leik sinn í hinni klassísku Tootsie frá árinu 1982 og síðan fyrir leik sinn í Blue Sky árið 1994.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×