Íslenski boltinn

Lokeren ætlar að bjóða í Gary Martin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gary Martin stóð sig vel hjá Lilleström og gæti haldið áfram þar eða farið til Lokeren.
Gary Martin stóð sig vel hjá Lilleström og gæti haldið áfram þar eða farið til Lokeren. mynd/lsk.no
Belgíska úrvalsdeildarliðið Lokeren ætlar nú að gera Pepsi-deildarliði Víkings tilboð í Gary Martin á næstu vikum, samkvæmt heimildum Vísis.

Gary gekk í raðir Víkings frá KR síðasta haust og gerði þriggja ára samning við Fossvogsfélagið. Hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum fyrir Víking í Pepsi-deildinni áður en hann var lánaður til Lilleström.

Rúnar Kristinsson, þáverandi þjálfari Lilleström, sóttist eftir kröftum Gary en saman urðu þeir Íslandsmeistarar í tvígang með KR. Rúnar var rekinn frá norska liðinu en er nú orðinn þjálfari Lokeren og vill aftur fá Gary til sín, samkvæmt heimildum Vísis.

Gary Martin skoraði fjögur mörk í tíu leikjum fyrir Lilleström og átti sinn þátt í því að liðið hélt sæti sínu í norsku úrvalsdeildinni. Það var í fallbaráttu fram í lokaumferðina en verður áfram á meðal þeirra bestu.

Fótboltavefsíðan 433.is greindi frá því í gær að Lilleström vill halda Gary hjá félaginu og kaupa hann frá Víkingum. Þá hefur verið hávær orðrómur um áhuga FH og Vals á enska framherjanum en það virðist alltaf ólíklegra að hann verði áfram í herbúðum Víkings.

Auk Rúnars eru á mála hjá Lokeren tveir íslenskir landsliðsmenn; bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason og miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×