Innlent

Lok lok og hjáleið frá Bankastræti

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Búið er að loka Laugaveginum frá Bankastræti að Skólavörðustíg og þurfa ökumenn að fara um hjáleið
Búið er að loka Laugaveginum frá Bankastræti að Skólavörðustíg og þurfa ökumenn að fara um hjáleið vísir/gva
Búið er að loka Laugaveginum frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Skólavörðustíg vegna framkvæmda við fyrirhugað verslunarrými á baklóð Laugavegs 4-6. Risastór byggingakrani og steypubílar munu hafa til 30. nóvember til að klára steypuvinnuna, þá verður kraninn fjarlægður hvort sem verkið er búið eða ekki.

Gunnar Guðjónsson formaður Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg.vísir/gva
Lokunin er gerð vegna öryggissjónarmiða en bílar og gangandi vegfarendur þvældust hverjir fyrir öðrum vegna umfangs hins stóra byggingakrana. Lokunin var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur þar sem Sjálfstæðisflokkurinn bókaði að mikilvægt væri að tímasetningar stæðust vegna jólaverslunarinnar. Þeir kaupmenn sem Fréttablaðið ræddi við í nágrenni framkvæmdanna voru uggandi yfir hávaðanum og látunum sem fylgja framkvæmdunum en mannsins mál heyrist varla fyrir hávaða. Enginn vildi þó tjá sig en þeir voru hissa þegar dagsetningin 30. nóvember var nefnd. Samkvæmt kynningarskilti um framkvæmdirnar kemur fram að húsið sem mun rísa eigi að sameina nútímalega hönnun og karakter gömlu húsanna með smekklegum hætti.

Umfang framkvæmdanna sést hér vel. Bílar áttu í erfiðleikum með að komast framhjá.vísir/gva
Reykjavíkurborg keypti lóðina á 580 milljónir árið 2008 en seldi á 365 milljónir 2014. Kaupin voru gerð í tengslum við samstarfsyfirlýsingu Ólafs F. Magnússonar og Sjálfstæðismanna í borgarstjórn þegar myndaður var nýr meirihluti í borgarstjórn og Ólafur F. varð borgarstjóri.

Gunnar Guðjónsson, gleraugnakaupmaður í Gleraugnamiðstöðinni og formaður Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg, segir að lokunin hafi farið öfugt ofan í rekstraraðila.

Gamla húsið sem stóð við Laugaveg 4-6 stendur nú út á Granda. vísir/GVA
„Eftir að kraninn stóri fór út á miðja götu þá kom kvörtun og framkvæmdirnar voru metnar þannig að þær væru hættulegar og þá þarf að loka fyrir bíla. Þá verður eðlilega allt brjálað meðal rekstraraðila,“ segir hann.

Halldór Halldórsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að lokunin hafi verið samþykkt vegna öryggismála vegfarenda. „Við erum almennt ekki hrifin af gatnalokunum á þessum tíma árs. Við lögðum fram bókun þar sem við áteljum þessi vinnubrögð. Kraninn verður tekinn niður 30. nóvember og ég fékk yfirlýsingu þess efnis að ef þetta verður ekki búið verði kraninn tekinn niður, jafnvel á kostnað verktakans. Það er algjört lykilatriði í mínum huga að kaupmenn nái jólaversluninni, hún er þeim mjög mikilvæg.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu

Framkvæmdirnar eru komnar vel af stað en þeir hafa til 30. nóvember til að klára verkið.vísir/GVA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×