Innlent

Lögreglumenn fái auknar heimildir

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Níu þingmenn þriggja stjórnmálaflokka vilja að lögreglan fái auknar heimildir sem eru sambærilegar við þær heimildir sem lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur til að rannsaka og grípa til gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Um svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir er að ræða.

Samkvæmt þingsályktunartillögunni fengi lögreglan heimild til að safna upplýsingum um einstaklinga eða lögaðila þótt ekki væri fyrir rökstuddur grunur um tiltekið afbrot sem framið hefði verið.

„Rannsókn fer fram áður en brot er framið og markmiðið er að koma í veg fyrir brot. Rannsóknin beinist að atferli sem talið er ógna almenningi, öryggi ríkisins og sjálfstæði þess. Lögreglan í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Danmörku telur að þessar heimildir hafi verið ómetanlegar í baráttunni gegn m.a. skipulagðri glæpastarfsemi, jafnt innlendri sem erlendri, mansali, fíkniefnainnflutningi og hryðjuverkaógn, svo að hið helsta sé nefnt," segir í greinargerð með tillögunni.

Fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar er Siv Friðleifsdóttir. Meðflutningsmenn hennar eru Róbert Marshall, Birgir Ármannsson, Birkir Jón Jónsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Kristján L. Möller, Sigurður Ingi Jóhannsson og Höskuldur Þórhallsson.

„Ljóst er að með þessum heimildum yrði samstarf íslensku lögreglunnar við lögreglulið annarra landa mun markvissara og líkur ykjust á að unnt yrði að hemja skipulagða glæpastarfsemi. Til að ná árangri gegn skipulagðri glæpastarfsemi, sem oft teygir anga sína þvert yfir landamæri, er nauðsynlegt að lögreglulið ríkjanna hafi sambærilegar heimildir. Afbrotamenn geta ferðast hindrunarlítið milli landa í Evrópu og mikil hætta er á að þeir leiti þangað sem viðbúnaður lögreglu er lakari og refsingar jafnvel vægari en í öðrum löndum álfunnar. Öryggi almennings og friður fyrir afbrotamönnum er mikilvægt velferðarmál sem vert er að undirstrika," segir í greingargerðinni.

Að mati flutningsmanna er ábyrgðarlaust að veita lögreglunni ekki heimildir til forvirkra rannsókna. „Óásættanlegt er að fljóta sofandi að feigðarósi í þessum málum og grípa ekki til aðgerða fyrr en það er jafnvel orðið of seint með tilheyrandi alvarlegum afleiðingum fyrir öryggi almennings."

Tillöguna er hægt að lesa hér.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×