Innlent

Lögreglan tilnefndi „landsliðið í mótmælum“

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Geir Jón Þórisson gerði skýrslu um mótmæli.
Geir Jón Þórisson gerði skýrslu um mótmæli. Fréttablaðið/Stefán
Er Héraðsdómur Reykjavíkur tók fyrir mál þeirra sem ákærðir voru fyrir að ryðjast inn í Alþingishúsið 8. desember 2008 taldi lögreglan nauðsynlegt að hafa viðbúnað.

Fjöldi lögreglumanna var í dómhúsinu. „Landslið mótmælenda var mætt á vettvang,“ segir Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, í skýrslu sinni um mótmæli á hrunárunum. Í landsliðið tilnefnir Geir Jón meðal annars Birgittu Jónsdóttur alþingismann.

Mannsöfnuður truflaði dómara

„Töluverður hiti var í samfélaginu vegna þessara réttarhalda og því talið nauðsynlegt að lögreglan yrði á staðnum. Fljótlega voru komnir um 70 manns við dómsal 101. Í upphafi höfðu einhverjir sett borða fyrir aðalinngan dómsins og stóð á honum „Heimavarnarliðið“, en borðinn var fjarlægður af lögreglu. Að öðru leyti kom ekki til afskipta lögreglu, en í nokkur skipti truflaði mannsöfnuðurinn dómarann með klappi og upphrópunum. Nokkur fjöldi lögreglumanna var hafður inni í dómhúsinu á meðan þinghald fór fram, auk þess sem laus lögreglutæki voru ekki langt undan;“ lýsir Geir Jón atburðarásinni.

Náðist að lempa þetta til

„Ljóst var að mótmælendur voru ekki sérstaklega ánægðir með veru lögreglumanna í upphafi og einhverjir létu þá heyra það. Allt gekk þó vel upp að lokum,“ segir áfram í skýrslu yfirlögregluþjónsins fyrrverandi.

„Miðað við allan þann atgang og reiði sem í gangi var gekk allt vel upp án mikilla afskipta lögreglu. Enginn handtekinn, eða beittur aflsmuna af hendi lögreglu. Náðist að lempa þetta til eins og aðstæður leyfðu," segir Geir Jón um það hvernig til tókst hjá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×