Innlent

Lögreglan segist ekki handtaka fólk sem neitar að borga á veitingastöðum

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Hafnarfirði.
Frá Hafnarfirði. Fréttablaðið/Valli
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á veitingastað í Hafnarfirði í gærkvöldi vegna átta ferðamanna sem neituðu að greiða fyrir mat og drykk. Ferðamennirnir voru ósáttir við skammtastærðirnar á veitingastaðnum, vildu fá meira fyrir peninginn og neituðu því að borga.

Sjá einnig: Ferðamenn neituðu að borga fyrir matinn á veitingastað í Hafnarfirði

Greint var frá þessu í dagbók lögreglunnar í morgun en Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi ekki algengt að lögreglan sé kölluð til vegna svona mála, þar sem viðskiptavinir neita að greiða fyrir mat á veitingastöðum.

Hann segir málið ekki hafa gengið svo langt að ferðamönnunum hafi verið hótað handtöku, enda gangi lögreglan aldrei svo langt í slíkum málum, líkt og því sem átti sér stað á veitingastaðnum í Hafnarfirði.

Hefðu ferðamennirnir hins vegar staðið við það að neita að greiða fyrir matinn, þá hefði lögreglan safnað upplýsingum um þá og væntanlega kært þá fyrir fjársvik. „Við leitum alltaf að meðalhófinu,“ segir Margeir við Vísi um málið.

Frá Neytendastofu fengust þær upplýsingar að veitingastaðir hafi almennt frekar frjálsar hendur þegar kemur að skammtastærðum. Nema þeir hafi auglýst fyrirframgefna skammtastærð, 120 gramma steik, 200 gramma hamborgara, 16 tommu pizzu, svo dæmi séu tekin, en afgreiddur réttur næði ekki þeirri stærð. Þá væri veitingastaðurinn búinn að gera sig sekan um villandi upplýsingar, sem og ef hann auglýsir veglegan rétt með mynd en sú mynd sé í engu samræmi við afgreiddan rétt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×