Innlent

Lögreglan lýsir eftir Jónu Maggý

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jónu Maggý Klemenzdóttur sem er 14 ára gömul. Hún fór úr skóla sínum síðastliðinn fimmtudag og er talið að hún sé á höfuðborgarsvæðinu eða á Selfossi.

Jóna er 175 cm á hæð, um það bil 60 kg, mjög grönn, með blá augu og dökkbrúnt hár sem nær niður á mitti. Hún er klædd í dökkbláa Cintamani-úlpu, svartar þröngar íþróttabuxur og hvíta strigaskó.

Þeir sem vita hvar hún heldur sig eða um ferðir hennar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×