Innlent

Lögreglan birtir mynd af Artur sem fengin er úr eftirlitsmyndavél í miðborginni

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú sent frá sér mynd af Artur sem fengin er úr eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur og er frá þriðjudagskvöldinu 28. febrúar síðastliðnum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú sent frá sér mynd af Artur sem fengin er úr eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur og er frá þriðjudagskvöldinu 28. febrúar síðastliðnum.
Lögreglan leitar enn að Artur Jarmoszko, 26 ára karlmanni frá Póllandi, sem lýst var eftir fyrst í gærkvöldi.

Síðast er vitað um ferðir hans í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir miðnætti þann 1. mars síðastliðinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú sent frá sér mynd af Artur sem fengin er úr eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur og er frá þriðjudagskvöldinu 28. febrúar síðastliðnum.

Talið er að Artur sé klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, í bláum gallabuxum og í hvítum strigaskóm. Hann er grannvaxinn, 186 sentimetrar á hæð, með græn augu og stutt, dökkt hár.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Artur eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.


Tengdar fréttir

Lögreglan lýsir enn eftir Artur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Artur Jarmoszko, 26 ára karlmanni frá Póllandi, sem lýst var eftir fyrst í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×