Fótbolti

Liverpool tapaði á marki í uppbótartíma

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alberto Moreno fór illa með gott færi undir lok leiks.
Alberto Moreno fór illa með gott færi undir lok leiks. vísir/getty
Adrián López tryggði Villarreal 1-0 sigur á Liverpool í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar á El Madrigal í kvöld.

Markið kom á annarri mínútu í uppbótartíma. Denis Suárez slapp þá inn fyrir vörn Liverpool og lagði boltann til hliðar á Adrián sem skoraði af öryggi.

Þetta var fyrsta tap Liverpool í Evrópudeildinni á tímabilinu en Jürgen Klopp geymdi framherjann Daniel Sturridge á bekknum allan tímann.

Seinni leikur liðanna fer fram á Anfield Road eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×