Fótbolti

Liverpool áfram eftir jafntefli á Old Trafford | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Coutinho fagnar markinu.
Coutinho fagnar markinu. vísir/getty
Liverpool er komið áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir jafntefli gegn Manchester United, 1-1, í seinni leik liðanna á Old Trafford í kvöld.

Liverpool var með 2-0 forskot eftir fyrri leikinn þar sem lærisveinar Jürgen Klopp voru með mikla yfirburði. Samanlagður sigur Liverpool, 3-1.

Anthony Martial fiskaði vítaspyrnu þegar Nathaniel Clyne braut á honum eftir ríflega hálftíma leik og skoraði hann úr spyrnunni sjálfur, 1-0.

Þá vantaði United aðeins eitt mark til að koma sér í framlengingu eða tvö mörk til að komast áfram. Philippe Coutinho var þó fljótur að drepa allar vonir heimamanna.

Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði Brasilíumaðurinn frábært mark eftir að fífla Varela í bakverði United upp úr skónum. Hann komst upp að endamörkum og lyfti boltanum snyrtilega yfir De Gea, 1-1.

Þrátt fyrir að þurfa þrjú mörk í seinni hálfleik var United-liðið varla líklegt til að skora eitt mark og því náði Liverpool nokkuð auðveldlega þeim úrslitum sem liðið þurfti.

Liverpool áfram eftir fyrsta Evrópueinvígi þessara miklu erkifjenda, 3-1.

Anthony Martial kemur United í 1-0 (1-2): Philippe Coutinho jafnar í 1-1 (1-3):



Fleiri fréttir

Sjá meira


×