Fótbolti

Litla flugvélin tekin við stjórninni hjá AC Milan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vincenzo Montella er orðinn þjálfari ítalska stórliðsins AC Milan og fær það verðuga verkefni að rífa liðið upp eftir meðalmennsku tímabil hjá Rossoneri.

AC Milan endaði í sjöunda sæti í ítölsku deildinni en komst reyndar í bikarúrslitaleikinn þar sem liðið tapaði fyrir Juventus.

AC Milan rak Sinisa Mihajlovic í apríl en Cristian Brocchi stýrði liðinu út tímabilið. Forráðamenn AC Milan tilkynntu um ráðningu Montella í gær og sögðust vera mjög spenntir fyrir því „frábæra leikkerfi" sem hann er þekktur fyrir að nota.

Vincenzo Montella er 42 ára gamall og hefur áður þjálfað Sampdoria, Catania og Fiorentina á sínum þjálfaraferli sem hófst árið 2011. Montella tók við liði Sampdoria af Walter Zenga í nóvember síðastliðnum og bjargaði liðinu úr erfiðari stöðu.

Vincenzo Montella skrifaði undir tveggja ára samning og fær samkvæmt heimildum Gazzetta dello Sport 2,3 milljónir evra í árslaun eða 317 milljónir í íslenskum krónur.

AC Milan þurfti líka að borga Sampdoria 500 þúsund evrur til að losa hann undan samningi við Sampdoria sem gerir 69 milljónir í íslenskum krónum.

Vincenzo Montella var farsæll framherji á sínum ferli og fékk viðurnefnið „L'Aeroplanino" eða „Litla flugvélin". Hann var meðal annars leikmaður Roma-liðsins sem varð ítalskur meistari 2001 þar sem Montella skoraði 14 mörk í 28 leikjum.

Montella skoraði alls 141 mark í 288 leikjum í ítölsku A-deildinni á sínum ferli en hann spilaði einnig 10 leiki og skoraði 2 mörk með Fulham tímabilið 2006-07.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×