Innlent

Listasafn sparaði og keypti eftirlíkingar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svona líta sjöurnar frá Arne Jacobsen út sem Listasafnið á. Safnið keypti eftirlíkingar þegar ekki var til peningur fyrir alvöru hönnun.
Svona líta sjöurnar frá Arne Jacobsen út sem Listasafnið á. Safnið keypti eftirlíkingar þegar ekki var til peningur fyrir alvöru hönnun. vísir/stefán
Listasafn Reykjavíkur, í Hafnarhúsinu, keypti eftirlíkingar af hinni þekktu hönnun Arne Jacobsen sjöunni þegar það vantaði stóla í safnið á árunum eftir hrun. Stólunum hefur núna verið fargað, eftir að Eyjólfur Pálsson í Epal gaf safninu ekta sjöur.

„Hann gaf safninu sjöur af mikilli rausn og þessum eftirlíkingum var fargað,“ segir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafnsins, í samtali við Fréttablaðið.

Frá afhendingu stólanna í desember 2013. Vísir/GVA
Hafþór segir að eftirlíkingarnar hafi ekki verið lengi í safninu. „En þær voru keyptar eftir hrunið. Við gátum ekki fengið sjöur á þeim tíma,“ segir Hafþór.

Eyjólfur í Epal hafi bent safninu á að það passaði ekki að hafa þar eftirlíkingar og boðist til að gefa safninu raunverulegar sjöur. Nýju stólarnir komu svo í húsið þann 4. desember 2013. Aðspurður hve marga stóla safnið hafi fengið að gjöf frá Epal segir Hafþór að þeir hafi verið 25. „Þannig að þú sérð að þetta var rausnarleg gjöf,“ segir hann.

Hafþór segir að stólarnir hafi verið orðnir mjög lélegir og farið í Sorpu. „Þeir hefðu ekki komið neinum öðrum að gagni,“ segir Hafþór.

Eyjólfur Pálssonvísir/gva
Eyjólfur Pálsson segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi séð stólana í Hafnarhúsinu og stólarnir hafi truflað sig.

„Þeir voru keimlíkir, en það er ekki mitt að segja hvort þeir hafi verið eftirlíkingar,“ segir hann spurður út í málið. Eftir þetta hafi hann farið að ræða við forsvarsmenn Listasafnsins. 

„Þeir áttu engan pening. Og hvað gerir maður? Þeir áttu 100 fyrir og vantaði 25 í viðbót. Þá talaði maður við framleiðandann. Þeir gáfu helming og við helming,“ segir Eyjólfur.

Jón Gnarr veitir stólunum viðtök frá Eyjólfi í Epal.Vísir/GVA
Eyjólfur segir að opinberir aðilar hafi verið góðir viðskiptavinir í gegnum árin og því hafi það verið sjálfsagt að liðsinna opinberri stofnun sem þurfti liðsinni.

„Epal verður 40 ára á næsta ári og alltaf á sömu kennitölunni, vel að merkja. Við myndum ekki vera það nema við hefðum haft góða viðskiptavini í gegnum árin og hið opinbera hefur verið góður viðskiptavinur. Þegar þeir lenda á villigötum þá leiðréttum við það,“ segir Eyjólfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×