Innlent

Líklegt að sjómenn og útgerðarmenn semji á morgun

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Vísir/ÞÞ
Ríkissáttasemjari hefur boðað deiluaðila í sjómannaverkfallinu til fundar á morgun. Útgerðarmenn hafa fundað í allan dag og samkvæmt heimildum fréttastofu ríkir bjartsýni meðal þeirra sem og sjómannaforystunnar fyrir fundinn á morgun. Aðeins sjö skip úr öllum fiskiskipaflota landsins voru úti á hafi í dag en þau eru þó öll á leiðinni í land.

Verkfall sjómanna getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskan fisk á erlendum mörkuðum dragist verkfallið á langinn. Markaðsaðilar leitast ekki eftir því að verkfallið leysist heldur leita annað ef varan er ekki til.

Þrátt fyrir að tæplega tveir sólarhringar séu liðnir frá því að verkfallið hófst eru enn nokkur skip úti á sjó og sum þeirra langt úti á hafi og getur það tekið þau allt að viku að koma inn til hafnar. Þegar fréttastofan leit við hjá Vaktstöð Siglinga í dag mátti sjá einungis sjö fiskiskip úti til lands.

Útgerðarmenn hafa áhyggjur af því að langvarandi vinnustöðvun myndi hafa verulega slæm áhrif á markaði erlendis dragist það á langinn. Formaður Sjómannasambandsins tekur undir þessar áhyggjur.

„Við erum auðvitað ábyrgir hinu megin við borðið líka og við berum ábyrgð á þessu verkfalli ásamt þeim og við erum hluti af deilunni og okkar að leysa hana eins og þeirra,“ sagði Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Ísland nú seinni partinn.

Útgerðarmenn veittu ekki í viðtal í dag vegna deilunnar en hittust á fundi þar sem farið var yfir stöðuna og bjuggust við að funda fram eftir kvöldi.

Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari staðfesti í dag að hún hefur boðað deiluaðila á sinn fund á morgun klukkan fjögur þar sem reynt verður að koma á sáttum svo hægt verði að aflýsa verkfallinu.

Valmundur segir að sjómannaforystan hafi hitt útgerðarmenn í dag þar sem náðst hafi að leysa úr nokkrum málum.

„Við erum búnir að vera að hittast í dag, útgerðarmenn og sjómannaforystan, og það hafa gengið á milli okkar sendingar og það má segja að við séum bjartsýnni heldur en í gær allavega. Það er ekkert mikið sem stendur út af í raun og veru. Vélstjórarnir búnir að semja og við kannski reynum að gera eitthvað á svipuðum nótum en kannski vonandi eitthvað meira en það kemur bara í ljós,“ sagði Valmundur.


Tengdar fréttir

Sáttasemjari segir ólgu ríkja á vinnumarkaði

Ólga ríkir á vinnumarkaði, að mati ríkissáttasemjara. Hún segir traust vera forsendu fyrir breyttu kjarasamningslíkani, en skortur er á trausti eftir bankahrunið. Segir of mörgum vinnudeilumálum vera vísað til félagsdóms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×