Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Brasilíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í Brasilíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Max Verstappen varð þriðji með ótrúlegum akstri á Red Bull bílnum.

Hamilton minnkaði þar með forskot Rosberg í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í 12 stig, fyrir lokakeppnina í Abú Dabí.

Brautin var mjög blaut og miklar tafir urðu á keppninni sem varði samtals í rúma þrjá klukkutíma.

Aðstæður voru afar erfiðar á Interlagos brautinni. Ræsingunni var þess vegna frestað um 10 mínútur. Romain Grosjean hafnaði meira að segja í varnarveggnum á leið sinni á ráslínu. Haas bíllinn varð fyrir talsverðu tjóni og Grosjean gat ekki tekið þátt í keppninni. Atvikið bar með sér að vera einungis Grosjean að kenna.

Keppnin var ræst fyrir aftan öryggisbílinn af öryggisástæðum. Bílarnir fóru því rólega af stað og úðuðu upp vatninu af brautinni.

Öryggisbíllinn kom svo inn við lok sjöunda hrings og keppnin fór af stað.

Rosberg tapaði miklum tíma á Hamilton strax í endurræsingunni. Max Verstappen komst fram úr Kimi Raikkonen strax í endurræsingunni. Magnussen á Renault var svo fyrstur að skipta yfir á milliregndekk.

Marcus Ericsson á Sauber missti bílinn út í varnarvegg og öryggisbíllinn kallaður út aftur. Sauber bíllinn stöðvaðist á aðreininni að þjónustusvæðinu. Verstappen og Ricciardo komu inn og tóku milli regndekk undir.

Vafi er hvort Ricciardo og Verstappen náðu að taka þjónustuhlé áður en þjónustusvæðinu var lokað vegna staðsetningar Sauber bílsins. Ricciardo fékk refsingu fyrir að fara inn á lokað þjónustusvæði.

Öryggisbíllinn kom inn við lok 19. hrings. Raikkonen snarsnérist á ráskaflanum í endurræsingunni og keppnin var stöðvuð í kjölfarið. Ökumenn voru skikkaðir á ofur regndekk fyrir endurræsinguna.

Liðin nýttu biðina til að stilla bílunum upp fyrir aðstæður. Liðin voru að klaga hvort annað í stöðvuninni.

Keppnin var stöðvuð aftur eftir 8 hringi fyrir aftan öryggisbílinn. Brautin var metin of blaut.

Felipe Massa, heimamaðurinn á Williams bílnum hafnaði á varnarvegg og endaði á aðreininni að þjónustusvæðinu. Sorglegt fyrir Massa í sinni síðustu keppni í Brasilíu.

Keppnin sigldi svo áfram tíðindalítið til loka þrátt fyrir mikla bleytu og lítið grip. Verstappen var funheitur undir lokin og tók fram úr um það bil einum bíl á hring undir lokin. Hann kann greinilega gríðarlega vel við sig í rigningunni. Hann vann sig upp í þriðja sætið með því að taka fram úr Sergio Perez á 69. hring.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir brasilíska kappaksturinn. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×